Dómurinn í Rauðagerðismálinu „gríðarleg vonbrigði“

Frá aðalmeðferð Rauðagerðismálsins í héraðsdómi. Claudia Sofia Coel­ho Car­val­ho, sem …
Frá aðalmeðferð Rauðagerðismálsins í héraðsdómi. Claudia Sofia Coel­ho Car­val­ho, sem Steinbergur varði, er önnur til hægri á myndinni. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Þetta eru gríðarleg vonbrigði og kom mjög á óvart. Ég tel það nokkuð einsýnt að þetta mál komi til kasta Hæstaréttar þar sem þetta verður endurskoðað með einhverjum hætti,“ segir Steinbergur Finnbogason, verjandi Claudiu Sofiu Carvahlo í Rauðagerðismálinu, en sýknudómi hennar var snúið í 14 ára fangelsi. 

Angjelin Sterkaj var í dag dæmd­ur í Lands­rétti í 20 ára fang­elsi fyr­ir að hafa orðið Arm­ando Beqirai að bana við heim­ili sitt í Rauðagerði í Reykja­vík í fyrra. 

Þau Sheptim Qerimi, Claudia Sofia Coel­ho Car­val­ho og Murat Selivrada sem voru sýknuð af kröf­um ákæru­valds­ins í héraðdómi voru öll dæmd í 14 ára fang­elsi í Landsrétti.

Steinbergur var nýkominn með dóminn í hendurnar þegar mbl.is náði tali af honum og sagði ekki beint út að hann myndi ætla sér að áfrýja málinu til hæstaréttar en sagði þó:

„Miðað við þennan mikla viðsnúning tel ég það nokkuð einsýnt að þetta mál muni koma til kasta Hæstaréttar“

Steinbergur Finnbogason, lögmaður.
Steinbergur Finnbogason, lögmaður.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert