Þórdís Kolbrún fundaði með Selenskí

Volodimír Selenskí, for­seti Úkraníu, og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra …
Volodimír Selenskí, for­seti Úkraníu, og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra á fundi í Kænugarði í dag. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra fundaði með Volodimír Selenskí, for­seta Úkraínu, og öðrum ráðherrum ríkisins ásamt utanríkisráðherrum frá öðrum Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjum í dag. 

Á vef Stjórnarráðsins er greint frá því að fundinn hafi einnig setið Denis Sjmíhal forsætisráðherra, Olga Stefanísjinú aðstoðarforsætisráðherra og Dmítró Kúleba utanríkisráðherra.

Ráðherrarnir ræddu ástandið í Úkraínu og kölluðu stjórnvöld eftir áframhaldandi stuðningi.

Utanríkisráðherrar frá Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjum og ráðherrar ríkisstjórnar Úkraínu sátu …
Utanríkisráðherrar frá Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjum og ráðherrar ríkisstjórnar Úkraínu sátu fundinn. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Þá kynntu ráðherrarnir sér skemmdir af völdum rússneskra árása og lögðu blómsveig í minningu fórnarlamba hinnar manngerðu hungursneyðar Holodomor sem kostaði milljónir Úkraínumanna lífið árin 1932–1933.

Ráðherrarnir lögðu blómsveig í minningu fórnarlamba hinnar manngerðu hungursneyðar.
Ráðherrarnir lögðu blómsveig í minningu fórnarlamba hinnar manngerðu hungursneyðar. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Áþreifanlegur vetrarkuldi

„Það skiptir miklu máli að geta séð með eigin augum aðstæður í úkraínsku höfuðborginni, jafnvel þótt að um stutta heimsókn sé að ræða. Það sem blasir við eru fyrst og fremst hinar hrikalegu afleiðingar linnulausra árása Rússa á borgaralega innviði. Hér er stöðugt barist við að halda rafmagni gangandi svo fólk geti haldið á sér hita í hryllilegum vetrarkulda sem er orðinn áþreifanlegur, snjór yfir öllu og bítandi frost,“ er haft eftir Þórdísi í tilkynningunni.

Hún segir áhyggjur heimamanna ekki aðeins snúa að rafmagni heldur sé vatn einnig víða hætt að renna með tilheyrandi afleiðingum hvað varðar hreinlæti og heilsu.

Það er óhætt að segja að manni fallist hendur að sjá eyðilegginguna, en að sama skapi er baráttuþrek úkraínsku þjóðarinnar einstaklega aðdáunarvert gagnvart þeirri grimmd og illsku sem þessar ógeðfelldu árásir fela í sér. Það sem er mér efst í huga er vitaskuld að Ísland finni leiðir til þess að hjálpa og gera gagn. Hér er þjóð sem sætir tilefnislausri og fólskulegri innrás þar sem almenningur er gerður að skotmarki. Við verðum að standa með þeim.“

Hugrekki og æðruleysi ríkjandi

Þá er haft eftir Þórdísi að óskir Úkraínumanna snúist nú einna helst að áframhaldandi hernaðarlegum stuðningi og viðbrögðum við því neyðarástandi sem eyðilegging Rússa á orkuinnviðum hefur valdið.

Hér í borginni gengur lífið töluverðan vanagang á yfirborðinu þrátt fyrir þær ógnir sem að íbúunum steðja. Hugrekki og æðruleysi er ríkjandi en þar að auki hefur mér fundist mjög áberandi hversu mikla áherslu forystufólks Úkraínu leggur á að sýna þakklæti fyrir veittan stuðning.“

Á morgun mun Þórdís sitja fund utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsríkja í Búkarest í Rúmeníu.

Á morgun mun Þórdís sitja fund utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsríkja.
Á morgun mun Þórdís sitja fund utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsríkja. Ljósmynd/Stjórnarráðið
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert