Starfsmaður rekinn vegna klámmyndbandsins

Starfsmanni sem ábyrgur er fyrir klámmyndbandinu hefur verið sagt upp.
Starfsmanni sem ábyrgur er fyrir klámmyndbandinu hefur verið sagt upp. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Starfsmaður hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins sem bar ábyrgð á klámmyndbandi sem tekið var upp í björgunarmiðstöðinni í Skógarhlíð hefur verið leystur frá störfum. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá slökkviliðinu. 

Þar segir að málinu sé formlega lokið gagnvart honum og að forsvarsmenn séu miður sín vegna málsins. 

Engir frekari eftirmálar

„Í kjölfar nánari rannsókna kom því miður í ljós að starfsmaður hjá SHS bar ábyrgð á þessu
myndskeiði. Málinu er formlega lokið gagnvart honum og starfar hann ekki lengur hjá SHS.
Við erum algjörlega miður okkar að allt það frábæra starfsfólk sem starfar hjá SHS,
vinnustaðurinn og okkar störf hafi verið dreginn inn í mál af þessu tagi,“ segir í tilkynningunni. 

Málinu er lokið af hálfu slökkviliðsins og hefur enga frekari eftirmála.

Tilkynninguna í heild sinni má lesa hér: 

Myndbandsupptaka í sjúkrabifreið Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins (SHS) fékk nafnlausa ábendingu um að kynlífsmyndband hafi verið tekið upp í sjúkrabíl á vegum liðsins. Ábendingin var tekin alvarlega og farið í að rannsaka málið innanhúss.

Við fyrstu skoðun var ekki hægt að staðfesta málið með þeim gögnum sem þá lágu fyrir. Eftir að málið fór í fjölmiðla í gær komu fleiri ábendingar sem hægt var að fylgja eftir. Í kjölfar nánari rannsókna kom því miður í ljós að starfsmaður hjá SHS bar ábyrgð á þessu myndskeiði.

Málinu er formlega lokið gagnvart honum og starfar hann ekki lengur hjá SHS. Við erum algjörlega miður okkar að allt það frábæra starfsfólk sem starfar hjá SHS, vinnustaðurinn og okkar störf hafi verið dreginn inn í mál af þessu tagi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert