Skjálftahrina á óvenjulegum stað vekur spurningar

Frá Skoruvíkurbjargi á Langanesi.
Frá Skoruvíkurbjargi á Langanesi. mbl.is/Líney Sigurðardóttir

Hrina jarðskjálfta hófst á óvenjulegum stað undan ströndum landsins í nótt. Stendur hún enn yfir. Fleiri skjálftar hafa nú riðið yfir á svæðinu frá miðnætti en í þrjátíu ár þar á undan, samkvæmt mælingum Veðurstofunnar.

Miðpunktur hrinunnar er utarlega í Bakkaflóadjúpi, tæplega 50 kílómetra austnorðaustur af Fonti, en svo nefnist ysti oddur Langaness.

Hér má sjá staðsetningu skjálftanna norðaustur af landinu.
Hér má sjá staðsetningu skjálftanna norðaustur af landinu. Kort/map.is

Tveir af stærðinni 2,9

Svo virðist sem hrinan hafi hafist um klukkan korter í þrjú í nótt, þegar skjálfti af stærðinni 1,9 reið yfir.

Á annan tug skjálfta hefur fylgt í kjölfarið, þar af tveir af stærðinni 2,9.

Langflestir skjálftanna sem hafa mælst til þessa eru yfir tveimur að stærð.

Sjaldgæfir skjálftar

Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands er það sjaldgæft að skjálftar verði á þessu svæði, að minnsta kosti svo að mælar nemi. 

Ljóst er að hrinan vekur spurningar á meðal jarðvísindamanna.

„Það hafa orðið skjálftar þarna áður,“ segir Lovísa Mjöll Guðmundsdóttir náttúruvársérfræðingur í samtali við mbl.is. En þeir eru ekki margir.

„Ef við lítum allt aftur til ársins 1991, þegar þetta kerfi var sett á laggirnar, þá hafa mælst þarna um tíu skjálftar þar til núna.“

Aðspurð kveðst Lovísa ekki geta fullyrt hvað valdi þessari óvenjulegu hrinu. Hún segir skjálftasérfræðinga Veðurstofunnar nú vinna í því að leita skýringa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert