Tíu áramótabrennur í Reykjavík

Áramótabrennur og flugeldar eru ómissandi hluti af áramótunum hjá mörgum.
Áramótabrennur og flugeldar eru ómissandi hluti af áramótunum hjá mörgum. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Áramótabrennur verða á tíu stöðum í Reykjavík í ár eftir að hafa fallið niður síðastliðin tvö ár. Ýmist sér borgin eða félagasamtök um brennurnar og verður kveikt í bálkestinum klukkan 20:30 eða 21.

Hvar verða brennurnar?

  • Úlfarsfell á athafnasvæði Fisfélagsins ofan við Lambhagaveg (kl. 15)
  • Við Ægisíðu (kl. 20:30)
  • Við Suðurhlíðar, neðan við Fossvogskirkjugarð, (kl. 20:30)
  • Laugardalur, fyrir neðan Laugarásveg 18 (kl. 20:30)
  • Geirsnef, á norðanverðu Geirsnefi (kl. 20:30)
  • Við Suðurfell (kl. 20:30)
  • Við Rauðavatn að norðanverðu (kl. 20:30)
  • Gufunes við Gufunesbæ (kl. 20:30)
  • Við Kléberg á Kjalarnesi (kl. 20:30)
  • Í Skerjafirði gegnt Skildinganesi 48-52, (kl. 21)
Áramótabrennur verða á tíu stöðum í Reykjavík.
Áramótabrennur verða á tíu stöðum í Reykjavík. Ljósmynd/Reykjavíkurborg

Það eina sem getur komið í veg fyrir að áramótabrennurnar verði haldnar er hvassviðri. Brennur eru ekki tendraðar ef vindhraði er yfir 10 m/s segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert