Krapaflóð féll á Patreksfirði

Á myndinni má sjá ummerki um flóðið sem féll um …
Á myndinni má sjá ummerki um flóðið sem féll um klukkan 10 í morgun. Ljósmynd/Guðlaugur Albertsson

Krapaflóð féll á tíunda tímanum í dag á Patreksfirði. Engin hús eða manneskjur urðu fyrir flóðinu.

Flóðið féll niður sama farveg og flóðið sem féll á Patreksfirði árið 1983 en er mun minna að umfangi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavörnum.

Lítill snjór er í fjallinu fyrir ofan bæinn en mikil rigning. Verið er að meta stöðuna og því hefur svæðinu verið lokað. Íbúar eru beðnir um að halda sér fjarri farvegi flóðsins þar sem ekki er hægt að útiloka frekari flóð. Ekki er talin þörf á rýmingu eins og staðan er núna.

Búið er að virkja samhæfingarstöð í Skógarhlíð og búið er að lýsa yfir hættustigi almannavarna á Patreksfirði. Þá hefur ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Vestfjörðum lýst yfir hættustigi almannavarna vegna krapaflóðsins.

Á sunnudaginn voru 40 ár liðin frá mannskæðu krapaflóði á Patreksfirði 22. janúar 1983, en þá fór fram minningarathöfn vegna þeirra fjögurra sem létu lífið, auk þess sem að eignatjón var verulegt.

Frá Patreksfirði. Myndin er tekin fyrir nokkrum dögum.
Frá Patreksfirði. Myndin er tekin fyrir nokkrum dögum. mbl.is/Guðlaugur J. Albertsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert