Rúta fór út af vegi og valt

Engan sakaði sem betur fer.
Engan sakaði sem betur fer. Ljósmynd/Lögreglan

Laust fyrir klukkan 14:30 var tilkynnt um að rúta hefði farið út af og oltið á hliðina á Ólafsfjarðarvegi skammt frá Múlagöngum, Ólafsfjarðar megin.

Alls voru 25 farþegar voru í rútunni auk ökumanns og fararstjóra, að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni á Norðurlandi eystra. 

„Engin alvarleg slys urðu á fólki. Lögregla, slökkvilið og sjúkraflutningalið var sent á vettvang. Fjöldahjálparstöð var opnuð í Menntaskólanum á Tröllaskaga, þangað sem farþegar rútunnar voru fluttir og starfsfólk Rauðakrossins hlúði að þeim. Lögregla vinnur að rannsókn að tildrögum slyssins á vettvangi,“ segir í tilkynningu lögreglu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert