Ástráður settur ríkissáttasemjari

Störf Ástráðs Haraldssonar munu einvörðungu snúa að vinnudeilu Eflingar og …
Störf Ástráðs Haraldssonar munu einvörðungu snúa að vinnudeilu Eflingar og SA. Samsett mynd

Ástráður Haraldsson héraðsdómari hefur verið settur sem ríkissáttasemjari í yfirstandandi vinnudeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins. 

Stjórn dómstólasýslunnar hefur samþykkt að veita Ástráði leyfi frá dómarastörfum og hefst leyfið nú þegar.

Þetta kemur fram í tilkynningu Stjórnarráðsins.

Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari óskaði eftir því að fá að víkja í yfirstandandi kjaradeilu Eflingar og SA og varð Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, við þeirri beiðni. 

Aðalsteinn Leifsson gegnir eftir sem áður embætti ríkissáttasemjara. Störf Ástráðs Haraldssonar munu einvörðungu snúa að ofangreindri vinnudeilu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert