Vegurinn um Fagradal nú opinn

Búið er að opna veginn um Fagradal.
Búið er að opna veginn um Fagradal. Steinunn Ásmundsdóttir

Búið er að opna veginn um Fagradal. Vegur 92 frá Eskifirði til Neskaupstaðar er þó enn lokaður. Enn er verið að vinna að því að greiða veginn. 

Þá er vegurinn á milli Breiðdalsvíkur og Fáskrúðsfjarðar enn ófær. 

Þessu greinir Vegagerðin frá. 

Fyrr í dag féll snjóflóð undir Grænafelli sem var 60 metrar á breidd og tveir metrar á dýpt og fór flóðið yfir veginn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert