Von der Leyen: Ísland fær undanþágur

Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, og Katrín Jakobsdóttir …
Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra í Ráðherrabústaðnum í dag. mbl.is/Arnþór

Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hafa rætt um fyr­ir­hugaða lög­gjöf ESB um los­un­ar­heim­ild­ir á flug­ferðir og áhrif þeirra á íslensk flugfélög. Fram kom á sameiginlegum blaðamannafundi þeirra að tekið verði tillit til séríslenskra aðstæðna og að Ísland muni hljóta undanþágur.

Fundur von der Leyen og Katrínar fór fram í Ráðherrabústaðnum nú á fjórða tímanum. 

Aðspurð um málið, sagði von der Leyen að ESB sýndi Íslendingum skilning í málinu og að sameiginleg lausn hefði fundist, en tók jafnframt fram að málið væri enn í vinnslu og ætti eftir að ræða og útfæra betur. Fram kom að Ísland muni fá, árin 2025 og 2026, auknar heimildir til að losa koltvísýring í flugi.

Katrín tók í svipaðan streng og sagði að það ætti eftir að ræða málið nánar innan ríkisstjórnarinnar og á Alþingi, en ljóst sé að sameiginleg lending hefði náðst þar sem tillti væri tekið til íslenskra aðstæðna. Benti Katrín m.a. á að von der Leyen hefði komið til Íslands með flugi. 

Þórdís Kolbrún Reykjfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra sagði í samtali við mbl.is í mars að fyr­ir­huguð lög­gjöf ESB um los­un­ar­heim­ild­ir á flug­ferðir væri stærsta hags­muna­mál Íslands frá upp­töku EES-samn­ings­ins. Ut­an­rík­isþjón­ust­an hefði farið í for­dæma­laust átak til að reyna að hafa áhrif á lög­gjöf ESB.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert