Gylfi hyggst ekki höfða skaðabótamál

Gylfi Þór Sigurðsson ætlar að horfa fram á veginn.
Gylfi Þór Sigurðsson ætlar að horfa fram á veginn. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Gylfi Sigurðsson, fyrrverandi leikmaður Everton og íslenska landsliðsins, hefur ákveðið að höfða ekki skaðabótamál á hendur breskum yfirvöldum í tengslum við rannsókn sem hann sætti í 637 daga hjá lögreglunni í Manchester vegna gruns um kynferðisbrot. 

„Eftir vandlega athugun hefur Gylfi ákveðið að horfa fram á við. Að óbreyttu hyggst hann því láta hjá líða að krefjast skaðabóta,“ segir Róbert Spanó, lögmaður Gylfa, í skriflegu svari við fyrirspurn mbl.is. 

Róbert Spanó er lögmaður Gylfa Sigurðssonar.
Róbert Spanó er lögmaður Gylfa Sigurðssonar.

Gylfi var hand­tek­inn í júlí árið 2021 og var laus gegn trygg­ingu, allt þar til málið var látið niður falla í apríl síðastliðinn. Alls liðu 637 dag­ar frá því hann var hand­tek­inn og þar til málið var loks látið niður falla. Gylfa var sleppt gegn trygg­ingu a.m.k. sjö sinn­um á meðan mál­inu var frestað. Sætti hann farbanni á meðan rannsókn stóð.

Beðið talsverðan miska 

Ljóst er að Gylfi varð af talsverðum fjármunum þar sem hann var samningsbundinn Everton þegar rannsókn hófst. Þá hefur knattspyrnuferill hans beðið hnekki. Róbert Spanó sagði við mbl.is í apríl að Gylfi íhugaði málsókn. 

„Að mínu mati er ljóst að meðferð máls­ins í Bretlandi tók allt of lang­an tíma í ljósi aðstæðna. Það hef­ur valdið Gylfa og fjöl­skyldu hans um­tals­verðu tjóni auk gríðarlegs miska.

Á næstu dög­um mun hann fá lög­fræðilega ráðgjöf um hvort til­efni sé til þess að hann leiti rétt­ar síns fyr­ir bresk­um dóm­stól­um,“ sagði Róbert við mbl.is í apríl. 

Gylfi Sigurðsson lék með hinu fornfræga félagi Everton þegar rannsókn …
Gylfi Sigurðsson lék með hinu fornfræga félagi Everton þegar rannsókn hófst. AFP

Eins og fram hefur komið hyggst enska úrvalsdeildarliðið Everton sækja bætur vegna málsins og krefst 10 milljóna punda eða sem nemur um 1,7 milljörðum króna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert