Rafleiðni fer stígandi í Múlakvísl eftir skjálfta

Myndir teknar af brúnni.
Myndir teknar af brúnni. mbl.is/Jónas Erlendsson Fagradal

Rafleiðni fer stígandi í Múlakvísl og mikið vatn er í ánni. Talið er að þetta tengist jarðskjálftahrinu næturinnar. 

Þetta staðfestir náttúruvársérfræðingur á vakt á Veðurstofu Íslands.

Fréttaritari mbl.is var á ferð yfir Múlakvísl í morgun og tók eftirfarandi myndir, en samkvæmt honum er meira vatn í ánni en venjulega. 

Skjálftahrina hófst í nótt klukkan 1.18. Um var að ræða meira en sjötíu skjálfta og sá stærsti var 4,4 að stærð. 

Þegar mbl.is ræddi við náttúruvársérfræðing á vakt fyrr morgun sást ekkert á mælitækjum Veðurstofunnar sem gaf til kynna aukn­ingu í raf­leiðni eða vatns­hæð.

mbl.is/Jónas Erlendsson Fagradal
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka