Nýr gasmælir við gosstöðvarnar

Hér má sjá nýja gasmælinn.
Hér má sjá nýja gasmælinn. Ljósmynd/Veðurstofa Íslands

Nýtt gasmælitæki var sett upp af Veðurstofu Íslands við gosstöðvarnar í gær. Tækið mælir magn brennisteinsdíoxíðs sem stígur upp frá gosinu.

Uppsetning mælisins var í höndum Benedikts Gunnars Ófeigssonar og Bergs H. Bergssonar, sérfræðinga hjá Veðurstofu Íslands.

„Mælingarnar gefa upplýsingar sem notaðar eru til að meta magn brennisteinsdíoxíðs sem losnar út í andrúmsloftið. Þessar upplýsingar eru svo nýttar í gasdreifingarspár. Magn brennisteinsdíoxíðs sem kemur úr gosinu skapast einnig með kvikuflæði og getur hjálpað til við að meta stærð goss á hverjum tíma,“ segir í Facebook-færslu Veðurstofu Íslands.

Hér má nálgast ítarlegri upplýsingar um gasmengun gossins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert