Hvetja fyrirtæki til að sýna skipafélögunum aðhald

Félag atvinnurekenda kvartaði undan ógagnsæi verðskráa skipafélaganna.
Félag atvinnurekenda kvartaði undan ógagnsæi verðskráa skipafélaganna. Samsett mynd

Félag atvinnurekenda (FA) hvetur félagsmenn sína til að sýna viðskiptum Eimskip og Samskip aukið aðhald.

Fram kemur í tilkynningu á vef samtakanna að samtökin hafi kvartað undan sífelldum hækkunum á flutningskostnaði, ógegnsæjum verðskrám skipafélaganna og álagningu ýmiss konar aukagjalda.

„Þá benti félagið á þær samkeppnishindranir sem felast í því að í Sundahöfn er afgreiðslubúnaður og löndunaraðstaða í eigu stóru skipafélaganna tveggja og önnur skipafélög þurfa því að semja við keppinauta sína, vilji þau komast að í stærstu inn- og útflutningshöfn landsins,“ segir í tilkynningunni.

Áhrif á verðlagningu innfluttra vara 

„Ákvörðun Samkeppniseftirlitsins í máli Samskipa sýnir fram á að með ólögmætu samráði héldu stóru skipafélögin uppi verði á flutningum, sem hafði að sjálfsögðu áhrif á verð margs konar innfluttra vara,“ segir Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri FA.

„Ófullnægjandi samkeppni á flutningamarkaði er áfram vandamál og þess vegna hefur sjaldan verið mikilvægara en nú á verðbólgutímum að grípa til ráðstafana til að efla samkeppnina og lækka verð, fyrirtækjum og neytendum til hagsbóta,“ er haft eftir Ólafi á vef samtakanna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert