Ölgerðin íhugar að sækja skaðabætur

Ölgerðin lýsir miklum vonbrigðum með þær upplýsingar sem fram komu í niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins vegna ólögmæts samráðs skipafélaganna Eimskipa og Samskipa. Ölgerðin skoðar möguleikann á að sækja skaðabætur vegna málsins.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. 

Þar segir jafnframt, að í gögnum Samkeppniseftirlitsins komi m.a. fram að þegar Ölgerðin gerði athugasemdir við verðhækkanir Eimskipa vegna flutningsþjónustu fyrir fyrirtækið árið 2009 og fór í framhaldinu í útboð um flutningana, hafi fyrirtækin tvö ekki aðeins haft samráð um málið, heldur hafi verið lagt fram sýndartilboð og verðið síðan hækkað enn frekar.

Svik við viðskiptavini og óskiljanlegir viðskiptahættir

„Þær upplýsingar sem fram komu í rannsókn Samkeppniseftirlitsins eru reiðarslag fyrir íslenska neytendur, svik við okkur sem einn stærsta viðskiptavin Eimskipa á þessum tíma, svik við viðskiptavini okkar og afhjúpar viðskiptahætti sem eru okkur algjörlega óskiljanlegir,“ er haft eftir Andra Þór Guðmundssyni, forstjóra Ölgerðarinnar, í tilkynningunni. 

„Það er deginum ljósara að samráð skipafélaganna hefur valdið okkur og neytendum  verulegum skaða og stórfelldu fjárhagslegu tjóni og við erum að skoða þann möguleika að sækja skaðabætur í ljósi niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins,“ segir hann enn fremur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert