Hafnar beiðni háskólanna um hækkun skráningargjalda

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, há­skóla-, iðnaðar- og ný­sköp­un­ar­ráðherra.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, há­skóla-, iðnaðar- og ný­sköp­un­ar­ráðherra. Samsett mynd

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ráðherra háskóla, iðnaðar og nýsköpunar, hefur neitað opinberu háskólunum um heimild til að hækka skrásetningargjöld.

Skólarnir höfðu beðið ráðuneytið um heimild til að hækka gjöldin úr 75.000 krónum í 95.000 krónur.

„Háskólanemar eru í hópi þeirra sem eru annað hvort nýkomin út á húsnæðismarkaðinn eða eru í þeim sporum að reyna að koma þaki yfir höfuðið,” er haft eftir Áslaugu í tilkynningu frá ráðuneytinu.

„Sá munur er einnig á háskólanemum á Íslandi og í nágrannaríkjunum að stærri hluti þeirra á ung börn og er að stíga sín fyrstu skref í að hlúa að fjölskyldu. Háir vextir, erfiðleikar með leikskólapláss og ýmsar aðrar aðstæður efnahagslífsins bitna nú a háskólanemum í þeim mæli að mikilvægt er að opinberir aðilar auki ekki á útgjöld þeirra.“

Auka fjárframlög til háskóla

Tekið er fram í tilkynningunni að fjárframlög til háskóla hafi hækkað og árið 2024 verði aukningin strax um 3,5 milljarða króna frá fyrri áætlunum.

Til ársins 2028 er gert ráð fyrir að fjárframlög til háskólastigsins aukist um sex milljarða króna.

„Það er mikilvægt að opinberir háskólar, líkt og aðrir opinberir aðilar, sýni aðhald í rekstri og finni leiðir til að sækja fram og auka gæði náms án þess að hækka skrásetningargjöld,“ er haft eftir ráðherranum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert