Ekki enn ljóst hvað veldur breytingum í Öskju

Öskjuvatn í vetrarríki hálendisins. Myndin er tekin í febrúar síðastliðnum.
Öskjuvatn í vetrarríki hálendisins. Myndin er tekin í febrúar síðastliðnum. mbl.is/Árni Sæberg

Hægt hefur á landrisinu í Öskju frá því í byrjun ágúst. Þetta segir í tilkynningu frá Veðurstofunni.

Rúm vika er síðan Morgunblaðið greindi frá því að dregið hefði úr landrisinu. 

„Það hef­ur ró­lega dregið úr ris­inu á þess­um tveim­ur stöðvum. Þær eru komn­ar nokkuð ná­lægt því að nema staðar, en ekki samt al­veg – þær eru enn á upp­leið,“ sagði Bene­dikt Gunn­ar Ófeigs­son, sér­fræðing­ur Veður­stof­unn­ar í jarðskorpu­hreyf­ing­um, þá í samtali við blaðið.

„En svo er önn­ur stöð, sem er í miðjunni á þessu öllu sam­an – við Ólafs­gíga, og hún sýn­ir ekki neina breyt­ingu. Sömu­leiðis sést eng­in skýr breyt­ing á stöðinni í Jóns­skarði, sem er líka inni í öskj­unni. Að minnsta kosti ekki enn,“ sagði Benedikt.

Rætt á fundi

Í tilkynningu Veðurstofunnar nú síðdegis segir að þessi breyting á landrisinu hafi verið á meðal umræðuefna á stöðufundi sérfræðinga stofnunarinnar, Háskóla Íslands og almannavarna. Ekki kemur fram hvenær fundurinn var haldinn.

Tekið er fram að á nokkrum GPS-mælum við Öskju hafi ekkert landris mælst frá því í lok ágúst.

Á sama tímabili séu engar vísbendingar um aukna jarðskjálftavirkni eða óeðlilegar breytingar á jarðhitavirkni í Öskju.

„Á þessari stundu er ekki ljóst hvað veldur þessari breytingu á þenslunni, en mögulega hefur innflæði kviku stöðvast eða að kvikan hefur fundið annan farveg sem dregur úr kvikuþrýstingi undir eldstöðinni,“ segir í tilkynningu Veðurstofunnar.

Vinna úr gögnunum

Bent er á að reglulegar mælingar við Öskju hafi áður sýnt tímabil sem einkennast af landsigi og eitt tímabil sem einkenndist af landrisi án þess að til eldgoss hafi komið.

Á þessu stigi sé ekkert hægt að fullyrða um hvernig málum muni fram vinda. Unnið verði frekar úr þeim gögnum sem liggja fyrir til þess að reyna að útskýra hvað veldur breytingunum.

Loks segir að nýrri skjálftastöð hafi verið bætt við í síðustu viku, vestan við Öskju, til að bæta ákvörðun staðsetningar og dýptar jarðskjálfta.

Benedikt sagði í síðustu viku að erfitt væri að túlka þess­ar mæl­ing­ar svo vel væri. Skrýtið væri að svo ná­læg­ar stöðvar sýndu jafn ólík merki.

„Við klór­um okk­ur aðeins í hausn­um yfir þessu. Af hverju breyt­ing­in sést bara á tveim­ur stöðvum en ekki öll­um. Það mun taka svo­lít­inn tíma að sjá hvað þetta þýðir og hvað það er í raun sem á sér stað þarna.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert