Skjálfti upp á 3,6 nálægt Þorbirni

Jarðskjálftinn fannst vel í Grindavík.
Jarðskjálftinn fannst vel í Grindavík. Kort/Map.is

Jarðskjálfti af stærðinni 3,6 mældist um 2,5 km norðvestur af Þorbirni á Reykjanesi klukkan 20.45 í kvöld. Jarðskjálftinn fannst í Grindavík en jarðskjálftahrina hófst á þessum slóðum rétt eftir miðnætti.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands. Áfram mælist talsverð jarðskjálftavirkni á svæðinu og hafa um 1900 jarðskjálftar mælst frá miðnætti. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka