Löngu tímabært að hafa áhyggjur

Horft til Grindavíkur.
Horft til Grindavíkur. mbl.is/Kristinn Magnússon

Þorvaldur Þórðarson, pró­fess­or í eld­fjalla- og berg­fræði, segir löngu tímabært að hafa áhyggjur af mögulegu eldgosi í grennd við Bláa lónið og Svartsengi. Ekki þurfi að hafa mörg orð um þær afleiðingar sem það gæti haft á innviði og byggð.

Þegar mbl.is sló á þráðinn til Þorvaldar var hann staddur í Svíþjóð og sólin skein. Hann hafði haft tíðindi af skjálftanum sem reið yfir í hádeginu en þá var hann á myndfundi með sérfræðingum heima á Íslandi.

„Já, ég held það sé löngu tímabært að hafa áhyggjur af því,“ segir Þorvaldur spurður um þá virkni sem hefur verið í grennd við Bláa lónið undanfarna daga og hvort við ættum að hafa áhyggjur af hugsanlegu eldgosi í kjölfarið.

Þorvaldur benti á í samtali við mbl.is á laugardag að lítill viðbragðstími væri ef kvika kemur upp þar sem virknin er núna.

Tíminn leiðir í ljós hvar gýs næst

Upptök skjálfta undanfarna daga hafa verið mun nær öllum innviðum heldur en eldvirkni síðustu ára á Reykjanesskaga.

Land hefur risið hratt við fjallið Þorbjörn og segir Þorvaldur áhugavert að á sama tíma hafi hægst á landrisinu við Fagradalsfjall. Það gæti þýtt að kvikan sé frekar að leita upp í grennd við Þorbjörn en Fagradalsfjall. 

„Það er þó alveg ómögulegt að segja til um hvort það komi eldgos þar [við Þorbjörn] eða við Fagradalsfjall. Tíminn verður bara að leiða það í ljós,“ segir Þorvaldur. 

Stór kvikugeymir er undir Reykjanesskaga, á um 10 til 15 kílómetra dýpi að sögn Þorvaldar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert