Allar leiðir lokaðar til Grindavíkur

Grindavíkurvegi var lokað eftir að skemmdir urðu á veginum vegna …
Grindavíkurvegi var lokað eftir að skemmdir urðu á veginum vegna skjálfta. mbl.is/Hermann

Allar leiðir eru nú lokaðar til Grindavíkur, nema fyrir viðbragðsaðila.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavörnum, nú eftir að bærinn hefur verið rýmdur.

Viðbragðsaðilum tekið að fækka

Rýmingin er sögð hafa gengið vel en henni lauk rétt eftir klukkan eitt í nótt.

Tekið er fram að í Grindavík sé viðbragðsaðilum tekið að fækka. Sjálfboðaliðar Rauða krossins séu enn fremur farnir af svæðinu.

Samhæfingarstöð almannavarna verði áfram starfandi þótt hluti starfsmanna sé farinn heim til hvíldar fyrir komandi vaktir.

Visindafólk Veðurstofunnar mun funda með fulltrúum almannavarna um klukkan þrjú í nótt og fara yfir stöðuna. Í framhaldi verður næsti stöðufundur samhæfingarstjórnar með aðgerðastjórnum og viðbragðsaðilum, að því er fram kemur í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert