Afla upplýsinga um stöðu Venesúelabúanna

Frá Si­món Bolív­ar-alþjóðaflug­vell­in­um í Venesúela í gær­kvöldi.
Frá Si­món Bolív­ar-alþjóðaflug­vell­in­um í Venesúela í gær­kvöldi. Ljósmynd/Aðsend

Dómsmálaráðuneytið hefur fengið fregnir frá einstaklingum innan hóps ríkisborgara Venesúela, sem fluttur var sjálfviljugur til heimalandsins í gær, um að fólkið hafi ekki fengið að fara frjálst ferða sinna við komuna til landsins.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stjórnarráði Íslands.

Í samvinnu við Evrópustofnun

Útlendingastofnun og embætti ríkislögreglustjóra stóðu að aðgerðinni í samvinnu við Landamæra- og strandgæslustofnun Evrópu (Frontex).

Flogið var frá Íslandi til Venesúela í beinu leiguflugi á vegum Frontex, sem veitti íslenskum stjórnvöldum aðstoð við undirbúning og framkvæmd ferðarinnar. Með um borð var starfsfólk á vegum Útlendingastofnunar og stoðdeildar ríkislögreglustjóra, hjúkrunarfræðingur og sjálfstæður eftirlitsaðili á vegum Frontex, auk spænskrar áhafnar.

Vinna að öflun nánari upplýsinga

Í tilkynningunni segir að flugið hafi gengið vel og farþegarnir gengið heilu og höldnu frá borði og inn í flugstöð í gærkvöld að íslenskum tíma. Þar hafi leiðir ríkisborgaranna frá Venesúela og starfsfólksins frá Frontex og Íslandi skilið.

„Íslensk stjórnvöld og Frontex vinna nú að því að afla nánari upplýsinga um fólkið og stöðu þeirra og verða veittar nánari upplýsingar um leið og hægt er,“ eins og segir í tilkynningunni.

Fólkið hafði dvalið hér á landi sem umsækjendur um alþjóðlega vernd en ýmist verið synjað eða dregið umsóknir sínar til baka. Í hópnum voru 155 fullorðnir og 25 börn, að því er segir í tilkynningu Stjórnarráðsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka