Kynlífstengt útkall endaði á bráðamóttöku

Slökkviliðið hafði í nógu að snúast á vaktinni.
Slökkviliðið hafði í nógu að snúast á vaktinni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hin ýmsu útköll voru á sjúkrabifreiðar slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins síðasta sólarhringinn. Sem dæmi má nefna útköll vegna fæðingar, slagsmála og endurlífgunartilraunar. Einnig fór slökkviliðið í kynlífstengt útkall sem endaði með heimsókn á bráðamóttöku.

Þetta kemur fram á Facebook-síðu slökkviliðsins.

Alls reyndust útköllin á vaktinni vera 214 talsins síðasta sólarhringinn.

Fjórar boðanir voru á dælubifreiðar. Eldur kviknaði í rusli og í lyftara, og reykskynjari bilaði. Einnig kviknaði gróðureldur við Vesturlandsveg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert