Næst ekki í eiganda rútunnar

Eldurinn í rútunni kviknaði í gærkvöldi.
Eldurinn í rútunni kviknaði í gærkvöldi. Samsett mynd/Slökkvilið höfðuborgarsvæðisins/

Lögregluna á höfuðborgarsvæðinu grunar að kveikt hafi verið í rútunni sem stóð í ljósum logum handan við Elliðavatn í gærkvöldi.

Ekki er vitað hver eða hverjir voru að verki, að sögn Heimis Ríkharðssonar lögreglufulltrúa.

Rútan hafði verið á þessum stað í nokkurn tíma og búið var að vinna skemmdir á henni áður en eldurinn kviknaði í gærkvöldi. Lögreglan hafði reynt að ná í eiganda rútunnar vegna skemmdarverkanna án árangurs og ekki hefur heldur tekist að ná í hann vegna eldsvoðans.

Rútan er líkast til ónýt, að sögn Heimis, og er hún enn á sama stað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert