Leit liggur niðri: Grjóthrun ofan í sprungunni

Erfiðar aðstæður eru í sprungunni í Grindavík.
Erfiðar aðstæður eru í sprungunni í Grindavík. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Leit að manninum, sem féll ofan í sprungu í Grindavík á miðvikudag, liggur niðri og hefur legið niðri síðan á tólfta tímanum í gærkvöldi.

Þetta segir Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, í samtali við mbl.is fyrir skömmu.

Ekki hægt að tryggja öryggi leitarmanna

„Á tólfta tímanum í gærkvöld þá stöðvuðum við leitina af þeirri ástæðu að ekki var hægt að tryggja öryggi leitarmanna ofan í sprungunni.

Það var grjóthrun niðri í sprungunni og af þeim sökum drógum við okkar mannskap í hlé,“ segir Úlfar og bætir því við að staðan verði endurmetin á stöðufundi aðgerðarstjórnar og vettvangsstjórnar klukkan 9.

Úlfar segir aðspurður ómögulegt að segja hver gangur leitarinnar sé.

„Við erum bara í ákveðnum aðgerðum þarna niðri og þær í sjálfu sér hafa gengið vel miðað við aðstæður en af öryggisástæðum þurftum við að gera hlé á leitaraðgerðum á tólfta tímanum í gærkvöldi.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka