Hætta áfram metin mjög mikil innan Grindavíkur

Áfram er hætta innan Grindavíkur í tengslum við sprungur.
Áfram er hætta innan Grindavíkur í tengslum við sprungur. Ljósmynd/Hörður Kristleifsson

Áfram er hætta innan Grindavíkur í tengslum við sprungur og að jarðvegur hrynji ofan í þær. Miklar hreyfingar hafa átt sér stað í tengslum við sigdalinn í austurhluta bæjarins. Hreyfingarnar urðu að mestu leyti á þeim sprungum sem mynduðust 10. nóvember og þegar höfðu verið kortlagðar.

Þetta segir í nýrri uppfærslu Veðurstofu Íslands um stöðuna í og við Grindavík en þar segir að kvikusöfnunin haldi áfram undir Svartsengi.

„Of snemmt er að fullyrða um hraðann á landrisinu þetta skömmu eftir eldgos. Sérfræðingar munu halda áfram að meta gögn frá GPS mælum á svæðinu til að fá heildarmat á stöðuna. Einn af mælunum sem var staðsettur norður af Grindavík fór undir hraun, en rúmlega 20 GPS mælar eru á svæðinu sem notast er við,“ segir í tilkynningu á vef Veðurstofunnar.

Líkur á að nýjar gossprungur opnist án fyrirvara

Áfram er líkur á að nýjar gossprungur opnist án fyrirvara en samkvæmt reiknilíkönum liggur kvika grunnt í suðurenda kvikugangsins. Þar virðist landið vera mikið sprungið og kvika eigi því auðvelt með að komast upp á yfirborðið.

Veðurstofan hefur gefið út uppfært hættumatskort. Engar breytingar eru á heildarhættumati á svæðunum frá því sem áður var. Kortið tekur gildi kl. 17 í dag og gildir fram á föstudaginn 19. janúar kl. 17 að öllu óbreyttu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert