Tilmæli um að stoppa ekki á Reykjanesbraut

Hraun flæddi yfir Grindavíkurveginn í gær.
Hraun flæddi yfir Grindavíkurveginn í gær. mbl.is/Kristinn Magnússon

Vegna eldgossins sem hófst á Reykjanesskaganum i gær eru vegfarendur beðnir um að stoppa ekki á Reykjanesbraut.

Neyðarstig er í gildi í Grindavík og er öll umferð bönnuð. Á umferðin.is kemur fram að um sé að ræða Grindavíkurveg, Suðurstrandarveg vestan Krísuvíkurgatnamóta og Nesveg.

Vetrarþjónustu á lokuðum vegum á Suðurnesjum er sinnt í samráði við almannavarnir. Nánari upplýsingar um færð og ástand á lokuðum vegum er hægt að nálgast í gegnum 1777.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert