Staðarhald á Hólum liggur í lausu lofti

Hólar í Hjaltadal.
Hólar í Hjaltadal. mbl.is/Sigurður Bogi

Staðarhald Hólastaðar er í lausu lofti og afar mikilvægt að eigandi Hóla, íslenska ríkið, bregðist við stöðunni og tryggi veg og virðingu Hólastaðar til framtíðar, segir á vef Háskólans á Hólum en tilefnið er ný skýrsla um endurreisn Hóla.

Fjöldi tillagna er í skýrslunni, m.a. að staðarhaldið verði einfaldað og aðskilið frá háskólastarfseminni. Hólmfríður Sveinsdóttir, rektor Háskólans á Hólum, segir það hvergi koma fram í lögum að skólanum beri skylda til að sinna staðarhaldinu. Þetta hafi Ríkisendurskoðun bent á í tvígang í skýrslu sinni til Alþingis en við því hafi ekki verið brugðist. Hólmfríður talar fyrir fimm stoðum til að byggja undir Hóla, til að skýra betur ábyrgð og hlutverk. 

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert