Skjálftahrina við Kleifarvatn

„Þetta er ekki eitthvað sem vekur einhvern óhug,“ segir náttúruvársérfræðingur …
„Þetta er ekki eitthvað sem vekur einhvern óhug,“ segir náttúruvársérfræðingur um smáskjálftahrinuna sem hófst við Kleifarvatn í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Skjálftahrina hófst við Kleifarvatn rétt fyrir hádegi í dag og hafa tæplega 100 smáskjálftar mælst þar. Hrinan er líklega vegna spennubreytinga á Reykjanesskaga.

„Þeir eru eru allir undir tveimur að stærð, flestir undir einum jafnvel,“ segir Hildur María Friðriksdóttir, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, í samtali við mbl.is. 

Hildur útskýrir að skjálftahrinan sé að öllum líkindum viðbragð við spennubreytingum sem hafa orðið til sökum jarðhræringa á svæðinu. Skjálftarnir séu því sennilega gikkskjálftar.

Um 100 skjálftar hafa mælst í hrinunni.
Um 100 skjálftar hafa mælst í hrinunni. Kort/Map.is

Kvikusöfnun nálgast 10 milljónir

Hegðun jarðhræringanna í kvikuganginum undir Grindavík hefur ekki breyst mikið. Frá miðnætti hafa aðeins nokkrir litlir skjálftar mælst á ganginum. „Frekar rólegt þar eins og er,“ segir Hildur.

Veðurstofan gerir ráð fyrir að um 9-10 milljónir rúmmetra af kviku hafi safnast í kvikuhólfinu undir Svartsengi, að sögn Hildar, sem bíður samt eftir því að frekari gögn berist í dag.

Eruð þið að búast við gosi um helgina?

„Það getur bara vel verið. Það eru bara miklar líkur á því að það verði gos núna um helgina eða á næstu dögum.“

Vekur ekki óhug

Veður­stof­an gaf það út í til­kynn­ingu á fimmtu­dag­inn að fyrirvari eld­goss gæti verið minni en 30 mínútur. Kæmi kvikan líklegast upp á svæðinu milli Stóra-Skóg­fells og Haga­fells.

Segja skjálftarnir á Kleifarvatni okkur eitthvað um það sem við má búast á Reykjanesskaganum?

„Nei, þeir gera það í rauninni ekki. Það koma bara reglulega hrinur og enn meiri núna þegar allt er að gerast þarna á Reykjanesinu,“ svarar Hildur.

Jarðvísindafólk á Veðurstofunni hefur því ekki áhyggjur af jarðskjálftahrinunni.

„Við auðvitað fylgjumst með þessu en þetta er ekki eitthvað sem vekur einhvern óhug,“ segir Hildur að lokum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert