Leikskólareiknirinn ný tölvuspá um biðtíma barna

Leikskólareiknirinn sýnir áætlaða stöðu barns á biðlista eftir leikskólaplássi út …
Leikskólareiknirinn sýnir áætlaða stöðu barns á biðlista eftir leikskólaplássi út frá fæðingardegi. Ljósmynd/Colourbox

Reykjavíkurborg hefur kynnt nýtt tól til leiks er kallast Leikskólareiknirinn. Reiknivélin sýnir foreldrum áætlaða spá um stöðu barns á biðlista eftir leikskólaplássi.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Reiknivélin byggir á lifandi gögnum borgarinnar og sýnir stöðu hvers og eins leikskóla og eru tölurnar því uppfærðar daglega. Til að kanna áætlaða stöðu barns á biðlista þurfa foreldrar einungis að slá inn fæðingardag barnsins og velja hverfi þar sem sótt er um pláss. 

Niðurstaðan er byggir á fæðingardegi barnsins, umsóknum sem þegar hafa borist, fjölda barna sem útskrifast úr leikskóla og innritast í grunnskóla ásamt fleiri breytum.

Einfaldari upplýsingagjöf og færri símtöl

Er þá tekið sérstaklega fram að niðurstöður úr reikninum geti ekki gefið loforð um pláss og gildi ekki sem umsókn, en sótt er um leikskólapláss í gegn um umsóknargátt borgarinnar Völu.

Segir í tilkynningu borgarinnar að markmið Leikskólareiknisins sé að auka að auka gagnsæi í upplýsingamiðlun og sýna stöðuna eins og hún er hverju sinni. Einnig einfaldi tólið upplýsingagjöf til foreldra sem áður þurftu jafnvel að hringja mörg símtöl til að spyrja um stöðu barns á biðlista.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert