Stærsta dánargjöf í sögu samtakanna

Maðurinn ánafnaði SOS Barnaþorpum allar eigur sínar og munu skjólstæðingar …
Maðurinn ánafnaði SOS Barnaþorpum allar eigur sínar og munu skjólstæðingar þeirra nú njóta þess. Ljósmynd/Claire Ladavicius

„Þetta eru gríðarlegir fjármunir og skipta miklu í okkar starfi,“ segir Ragnar Schram, framkvæmdastjóri SOS Barnaþorpa, en málaferlum um erfðamál manns án skylduerfingja, sem hafði ánafnað samtökunum allar eigur sínar, er nú lokið fyrir dómstólum. Um er að ræða stærstu dánargjöf í sögu samtakanna.

Lögerfingi mannsins fór með málið fyrir bæði héraðsdóm og Landsrétt, og bæði dómstig úrskurðuðu SOS Barnaþorpum í vil. Hæstiréttur hafnaði beiðni lögerfingjans um kæruleyfi.

„Þegar málinu er lokið mun stjórnin setjast yfir það hvernig við ráðstöfum þessu fé til skjólstæðinga okkar,“ segir Ragnar.

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert