Það var mikil gleði við opnun myndlistarsýningar leikskólabarna í Ísafjarðarbæ í dag. Forsetinn opnaði sýninguna og um 100 manns voru þar samankomnir.
Þetta segir Hafdís Gunnarsdóttir, sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs hjá Ísafjarðarbæ, í samtali við mbl.is.
Listaverkin eru á víð og dreif um Ísafjörð, Flateyri, Þingeyri, Suðureyri og hanga uppi næstu tvær vikurnar.
Þemað var „Páskar í huga leikskólabarns“ og það sem mátti sjá oft á listaverkunum voru skíðaferðir og rokktónlist.
„Það var skíði og rokk og ról. Það var bara unnin þemavinna og svo fóru þau bara að vinna. Það er greinilegt að skíði og rokk og ról eru páskar í þeirra huga,“ segir Hafdís og hlær.
Árlega tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður verður haldin í bænum um páskana að venju.
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, setti sýninguna og segir Hafdís að það hafi verið alveg meiriháttar að fá hann á staðinn.
Mugison og pabbi hans, Guðmundur Kristjánsson, skemmtu gestum og sungu.
„Þegar þeir sungu Gúanóstelpan – sem er nú svona okkar hátíðarsöngur, sérstaklega um páskana, þá kom sólin allt í einu. Það var alveg einstaklega skemmtilegt,“ segir Hafdís.