Kveðst íhuga forsetaframboð af alvöru

Jakob Frímann kveðst íhuga málið.
Jakob Frímann kveðst íhuga málið. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Jakob Frímann Magnússon, þingmaður Flokks fólksins, íhugar alvarlega að gefa kost á sér til embættis forseta Íslands.

Þetta segir hann í samtali við mbl.is. Hann kveðst munu tilkynna ákvörðun á næstu dögum.

Jakob kveðst hafa fengið hvatningu víða að.

„Það er ótrúlegasta fólk úr ýmsum ólíkum áttum. Það var það reyndar fyrir átta árum líka,“ segir Jakob, spurður hverjir hafi komið að máli við hann. 

Mun funda með stuðningsfólki og ráðgjöfum

Jakob er nú erlendis en kemur aftur heim eftir nokkra daga.

Hann segist munu þá eiga fundi með stuðningsfólki sínu og ráðgjöfum. Þá muni hann einnig ræða við þingflokk Flokks fólksins.

„Ég geri auðvitað ekkert án þess að ræða þetta almennilega við fólkið í kringum mig, fjölskylduna, þingflokkinn og aðra sem ég er í sambandi við.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert