Ráðherra fundar með læknum um skriffinnsku

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra og Margrét Ólafía Tómasdóttir, formaður Félags …
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra og Margrét Ólafía Tómasdóttir, formaður Félags íslenskra heimilislækna. Samsett mynd/mbl.is/Kristinn Magnússon/Sigurður Bogi

Heilbrigðisráðherra hefur boðað Félag íslenskra heimilislækna (FÍH) á fund vegna skriffinnsku í heilbrigðiskerfinu, sem hefur verið í umræðu upp á síðkastið.

Í könnun sem vitnað var í í Læknablaðinu í mars kom fram að 59% heimilislækna höfðu upp­lifað ein­kenni kuln­un­ar stund­um, oft eða mjög oft und­an­farna 12 mánuði. Ástæðurnar sem minnst var á var of mikið álag en einnig oft og tíðum vegna óhóflegrar pappírsvinnu.

Á fundi heilbrigðisráðherra og heimilislækna verður meðal annars rætt um hvernig hægt sé að draga úr fjölda vottorða og fækka tilvísunum.

Einnig er von um að tilvísanir til barnalækna verði að einhverju leyti afnumdar, að sögn Margrétar Ólafíu Tómasdóttur, formanns FÍH.

Misflókið að leysa vandann

Misflókið getur verið að leysa þennan vanda að sögn Margrétar.

„Með vottorðin þá ríkir áratugalöng hefð. Eins og með vinnuveitendavottorð í atvinnulífinu, þar þyrfti að fá inn í samtalið Samtök atvinnulífsins,“ segir Margrét í samtali við mbl.is.

Einnig þurfi að koma skýr fyrirmæli frá ráðherra um hvers kyns vottorð eigi heima undir hatti heimilislækna.

„Varðandi tilvísanir kemur það inn á borð Sjúkratrygginga líka. Þá þyrfti reglugerðarbreytingu í rauninni. Sama með fjölda skipta sem eru niðurgreidd hjá sjúkraþjálfara vegna beiðna.“

Málið flókið en auðleysanlegt

Vandamálið snertir afskaplega marga fleti heilbrigðiskerfisins og atvinnulífsins, sem gerir málið svolítið flókið að sögn Margrétar.

Hins vegar séu þetta í rauninni auðleysanleg verkefni sem ætti að vera hægt að hreinsa til á einfaldan hátt „ef maður bara tekur af skarið og gerir eitthvað í því“.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert