Konráð nýr efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar

Konráð S. Guðjónsson.
Konráð S. Guðjónsson. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Konráð S. Guðjónsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður ríkisstjórnar og mun hann bera starfstitilinn efnahagsráðgjafi ríkisstjórnar.

Konráð er hagfræðingur með B.Sc. gráðu frá Háskóla Íslands og M.Sc. frá Warwick-háskóla. Hann hefur verið aðstoðarmaður utanríkisráðherra og þar áður fjármála- og efnahagsráðherra frá því í nóvember síðastliðnum, að því er segir í tilkynningu.

Áður starfaði Konráð m.a. sem aðalhagfræðingur Arion banka, hagfræðingur og aðstoðarframkvæmdastjóri Viðskiptaráðs og tímabundið sem efnahagsráðgjafi Samtaka atvinnulífsins. Þá hefur hann sinnt kennslu við Háskóla Íslands, starfað hjá Hagfræðistofnun og við þróunarsamvinnu í Úganda og Tansaníu.

Aðstoðarmenn ríkisstjórnar eru nú þrír líkt og áður en auk Konráðs sinna þær Dagný Jónsdóttir og Anna Lísa Björnsdóttir starfinu.

Þær breytingar verða nú að Áslaug María Friðriksdóttir verður aðstoðarmaður forsætisráðherra ásamt Hersi Aroni Ólafssyni en áður starfaði hún sem aðstoðarmaður ríkisstjórnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert