Grunaður um að hafa valdið árekstri undir áhrifum áfengis

Lögregla handtók ökumanninn.
Lögregla handtók ökumanninn. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ökumaður í Grafarvogi var handtekinn grunaður um að valda árekstri undir áhrifum áfengis. 

Samkvæmt dagbók lögreglu var annar ökumaður stöðvaður í Árbænum grunaður um að aka án ökuréttinda, sem hann hafði verið sviptur. Var málið afgreitt með „vettvangsformi“.

Mikið var á könnu lögreglu í dag sem alls var með 45 mál á skrá í kerfi sínu en dágóður hluti þeirra snéri að aðstoðarbeiðnum vegna veikinda og fólks í annarlegu ástandi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert