Tveir á slysadeild eftir árekstur við Hólmsá

Tveir sjúkrabílar og dælubíll fóru á vettvang.
Tveir sjúkrabílar og dælubíll fóru á vettvang. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ökumenn tveggja bíla voru fluttir á slysadeild eftir árekstur á Suðurlandsvegi við Hólmsá laust fyrir klukkan hálftólf í morgun.

Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu komu fólksbíll og pallbíll úr gagnstæðri átt þegar þeir rákust saman.

Tveir sjúkrabílar voru sendir á vettvang ásamt einum dælubíl.

Ökumennirnir voru einir í bílunum. Ekki er ljóst hversu alvarleg meiðsli þeirra eru, segir varðstjórinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert