Guðmundur: Sunna ber ábyrgð á eigin orðum

Sunna sagði á dögunum að ríkisstjórnarsamstarfið væri að þurrka út …
Sunna sagði á dögunum að ríkisstjórnarsamstarfið væri að þurrka út fylgi flokksins. Guðmundur segir hana bera ábyrgð á eigin orðum. Samsett mynd

Sunna Valgerðardóttir, starfsmaður þingflokks Vinstri grænna, ber fulla ábyrgð á eigin skrifum.

Þetta segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, starfandi formaður flokksins, í samtali við mbl.is.

Skrif Sunnu á Facebook á dögunum vöktu mikla athygli en hún sagði að ríkisstjórnarþátttaka Vinstri grænna væri að þurrka út flokkinn.

Málfrelsi innan Vinstri grænna

„Það er málfrelsi hjá okkur í VG og starfsmaðurinn ber sjálfur ábyrgð á þeim orðum sem hún lætur frá sér fara. Ég hef enga sérstaka skoðun á því. Þetta er hennar skoðun og hún ber sjálf ábyrgð á því að hafa komið fram og greint frá henni,“ segir Guðmundur.

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra sagði í nýjasta þætti Spursmála að skrif Valgerðar hefðu gengið mjög langt og væru ekki til þess fallin að „skapa góða stemn­ingu í stjórn­ar­liðinu“.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert