Fjölmargir minnast breska eðlisfræðingsins Stephen Hawking á samfélagsmiðlum en hann lést í nótt, 14. mars á pí-deginum svonefnda. En dagsetningin er víða skrifuð 3.14, sem er hlutfallið milli ummáls hrings og þvermáls hans. 14. mars er einnig fæðingardagur Alberts Einstein.