Tíu létust og 15 slösuðust þegar Kanadamaðurinn Alek Minassian, 25 ára, ók á vegfarendur í miðborg Toronto í gær. „Hreinræktað blóðbað,“ segir yfirlæknir á gjörgæslu sjúkrahússins sem tók á móti tíu fórnarlömbum af vettvangi. Ekki er talið að um hryðjuverk hafi verið að ræða.