„Við erum eitt stórt spurningarmerki, fræðimenn á þessu sviði, hérna heima alla vega, um hvað er í gangi. Það er eitthvað í gangi,“ segir Edda Elísabet Magnúsdóttir, hvalasérfræðingur og aðjúnkt í líffræði við Háskóla Íslands, í samtali við mbl.is um tíðar komur smáhvela inn á grynningar.