Mikill gangur er kominn á uppbyggingu í Vogabyggð þar sem fram fer umfangsmikil enduruppbygging, fyrsta húsið við Trilluvog er farið að rísa og áætluð verklok á því eru í júlí á næsta ári. Alls er áætlað að íbúðir á svæðinu verði á bilinu 1.100 til 1.300.