„Maður er að gera eitthvað af sér,“ segir Helga Kolbrún Magnúsdóttir um íþróttina axarkast sem hún stundar af miklum móð. „Innri víkingur“ fólks brjótist fram þegar öxum er hent þéttingsfast í tréfleka svo hún festist. Stefnan hefur verið sett á að setja á fót deildarkeppni í axarkasti hérlendis.