„Það er alltaf hætta á að þessir einstaklingar svindli eða fari út í samfélagið,“ segir Jón Ívar Einarsson, prófessor við Harvard-háskóla, um núverandi fyrirkomulag í landamæraskimun. Hann stingur upp á að fólk fari í skimun í sínu heimalandi áður en það ferðast á milli landa og í seinni skimun hér.