Landslagið við gosstöðvarnar í Geldingadölum á Reykjanesi breytist hratt þar sem gríðarlegt magn af kviku dælist upp úr iðrum jarðar á degi hverjum. Fáir hafa verið jafn iðnir við að mynda þessar hröðu breytingar og ljósmyndarinn Kristinn Magnússon og hér má sjá afrakstur síðustu ferðar hans.