Eldgosið sem varð í Hnappafellsjökli árið 1362 er eitt það mannskæðasta sem hefur orðið á Íslandi. Byggðin næst jöklinum, Litla-Hérað, eyddist og talið er að um fjögur hundruð hafi látið lífið. Jökullinn hlaut í kjölfarið nýtt viðeigandi heiti, Öræfajökull, og sömuleiðis sveitin sem lagðist í eyði, sem síðan hefur nefnst Öræfi.