Í dag hófst tónvísindasmiðja í Hörpu þar sem grunnskólabörn úr Reykjavík kanna tengsl manna, náttúru, vísinda og tónlistar í gegnum Biophiliu-verkefni Bjarkar Guðmundsdóttur. Ásamt henni koma Háskóli Íslands og Reykjavíkurborg að verkefninu en hver smiðja stendur yfir í fjóra daga.