Grunnskólanemar keppa í lestri til að kenna tækjum íslensku

Framtíð íslenskrar tungu stendur og fellur með því að börn …
Framtíð íslenskrar tungu stendur og fellur með því að börn og unglingar noti tungumálið. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Framtíð íslenskrar tungu stendur og fellur með því að börn og unglingar noti tungumálið. Til að svo verði áfram þarf að tryggja að tæknin skilji raddir barna og unglinga, sem nú tala við flest sín tæki á ensku. Því hefur Lestrarkeppni grunnskólanna nú verið hleypt af stokkunum á samromur.is þar sem keppt er um fjölda setninga sem nemendur lesa inni á síðunni.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Háskólanum í Reykjavík og Almannarómi. Þar segir ennfremur, að þannig geti samstarf skóla, heimila og barna, ásamt svolitlu keppnisskapi, tryggt að íslenskan verði gjaldgeng í tölvum og tækjum og að tungumálið lifi af í stafrænum heimi. 

Almannarómur og Mál- og raddtæknistofa Háskólans í Reykjavík standa fyrir …
Almannarómur og Mál- og raddtæknistofa Háskólans í Reykjavík standa fyrir Lestrarkeppni grunnskólanna.

Þar segir, að Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, sé, ásamt Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta og sendiherra tungumála hjá UNESCO, verndari Almannaróms og hann muni veita sigurskólunum viðurkenningar.

Hér fjallar hann um keppnina og hvetur ungmenni til að taka þátt. 

„Þegar söfnuninni er lokið verður gagnasafnið gefið út með opnu leyfi. Þeir sem vilja þróa lausnir fyrir íslenska tungu geta notað gagnasafnið endurgjaldslaust, til að mynda fyrir íslenskt raddstýrt viðmót í tækjum og tólum, lestrarþjálfun, rauntímatextun á sjónvarpsefni og rauntímaþýðingar,“ segir í tilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert