Sigurþór ný framkvæmadastjóri SVFR

Sigurþór Gunnlaugsson, viðskiptafræðingur hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Stangaveiðifélags Reykjavíkur. Hann …
Sigurþór Gunnlaugsson, viðskiptafræðingur hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Stangaveiðifélags Reykjavíkur. Hann tekur við á merkum tímamótum þegar félagið er að fagna 80 ára afmæli. Ljósmynd/Aðsend

Sigurþór Gunnlaugsson, viðskiptafræðingur, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri SVFR. Starfið var auglýst laust til umsóknar fyrir nokkrum misserum, þegar ljóst var að Ari Hermóður Jafetsson ætlaði að láta af störfum með vorinu. Á fimmta tug umsókna bárust um starfið og í hópi umsækjenda voru margir hæfir umsækjendur. Framundan er stór áfangi hjá Stangaveiðifélagi Reykjavíkur en félagið fagnar 80 ára afmæli sínu þann 18. maí. Um ráðningu Sigurþórs sagði í fréttatilkynningu frá SVFR:

„Sigurþór er viðskiptafræðimenntaður og með MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík. Hann hefur mikla reynslu af rekstri, verkferla- og fjárhagsáætlanagerð og kostnaðareftirliti. Hann var markaðsstjóri Kringlunnar og síðar stjórnandi hjá Air Atlanta Icelandic, m.a. stöðvarstjóri í Bretlandi, Indlandi og Sádi Arabíu, yfirmaður á flugrekstrarsviði, útstöðva og ferðaþjónustu.

Sigurþór mun hefja störf í næstu viku og segist hlakka mikið til. „SVFR er einhver merkasti félagsskapur landsins, með magnaða sögu og frábær ársvæði á leigu. Ég tek við góðu búi, þar sem búið er að endurnýja samninga um öll lykilsvæði félagsins og við getum einbeitt okkur enn frekar að þjónustu við félagsmenn,“ segir Sigurþór.

Jón Þór Ólason, formaður SVFR fagnar ráðningunni og segir Sigurþór …
Jón Þór Ólason, formaður SVFR fagnar ráðningunni og segir Sigurþór muni efla skrifstofu félagsins.

Jón Þór Ólason, formaður SVFR, er ánægður með að fá Sigurþór til starfa. „Það var ánægjulegt að sjá hve margir sýndu starfinu áhuga, en Sigurþór er réttur maður fyrir félagið á þessum tímapunkti. Hann býr að mikilli rekstrarþekkingu og mun efla skrifstofu félagsins. Við hlökkum til að vinna með honum og bjóðum hann velkominn til starfa.““

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert