Fyrstu laxarnir eru mættir

Laxi landað í beljandanum við Urriðafoss á opnunardaginn 2018.
Laxi landað í beljandanum við Urriðafoss á opnunardaginn 2018. Harpa Hlín Þórðardóttir

Fyrstu laxar sumarsins sáust í Urriðafossi í Þjórsá í gærkvöldi. Þar var á ferð Stefán Sigurðsson frá Iceland Outfitters sem er með svæðið á leigu. Hann var að gera klárt fyrir opnun. „Við sáum tvo laxa stökkva í Huldu,“ skrifaði Stefán á Facebook-síðu sína í gærkvöldi.

Þetta er hefðbundinn tími þegar fyrstu laxarnir eru að mæta í Þjórsá. Veiði þar hefst 1. júní og er ljóst að opnunin getur orðið spennandi. Veiðistaðurinn Hulda er einn besti veiðistaðurinn á Urriðafosssvæðinu ásamt Lækjarlátrum.

Fallegt vatn er í Þjórsá núna til veiða. Jökulliturinn er minni en oft áður, en auðvitað getur það breyst fljótlega og sjaldan á vísan að róa þegar kemur að hinu mikla vatnsfalli Þjórsá.

Fjórar stangir eru á svæðinu og kvóti á hverja dagsstöng eru fimm laxar.

Þjórsá hefur verið með einhverja bestu veiði á dagsstöng á Íslandi frá því veiði hófst þar á vegum Iceland Outfitters sumarið 2017.

Frægur dúett við Urriðafoss í opnun í fyrra. Egill Guðjohnsen …
Frægur dúett við Urriðafoss í opnun í fyrra. Egill Guðjohnsen með Tóta tönn. Þeir hafa verið duglegir í Urriðafossi. IO Veiðileyfi

Vísbendingar sem fiskifræðingar hafa undir höndum benda til spennandi sumars í það minnsta á Suður- og Vesturlandi. Sterkir seiðaáragangar gengu út í fyrra og í hlýrri sjó en oft áður. Grásleppan er í hörkuformi og það þykir líka góð vísbending. Þrátt fyrir þessi jákvæðu teikn eru margar óþekktar stærðir í þessari jöfnu.

Laxinn líka mættur í Kjósina

Veiðivísir á visir.is greinir frá því nú í morgunsárið að Bubbi Morthens, sem býr stutt frá Laxá í Kjós, hafði staðfest að laxinn sé kominn í Kjósina. Hann segir í skilaboðum til blaðamanns að hann hafi séð tvo laxa á hefðbundnum stað fyrir fimm dögum.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Víðidalsá Stefán Elí Stefánsson 4. september 4.9.
101 cm Laxá í Dölum Hafþór Jónsson 27. ágúst 27.8.
102 cm Haukadalsá Ármann Andri Einarsson 23. ágúst 23.8.
103 cm Laxá í Aðaldal Birgir Ellert Birgisson 12. ágúst 12.8.
103 cm Miðsvæði Laxá í Aðaldal Máni Freyr Helgason 11. ágúst 11.8.
101 cm Laxá í Aðaldal Agnar Jón Ágústsson 10. ágúst 10.8.
101 cm Laxá í Aðaldal Richard Jewell 9. ágúst 9.8.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert