Önnur risahrygna úr Sjálfheldu

Boggi Tona og konan hans, Helga Vignisdóttir með hrygnuna glæsilegu. …
Boggi Tona og konan hans, Helga Vignisdóttir með hrygnuna glæsilegu. Hún mældist 100,5 sentímetrar. Ljósmynd/Aðsend

Stærsti lax sem vitað er um í sumar veiddist í Jöklu fyrir austan. Það var 107 sentímetra hrygna sem veiddist í veiðistað sem heitir því áhugaverða nafni Sjálfhelda. Borgar Antonsson, eða Boggi Tona fór nýlega á þennan veiðistað og setti undir rauðan Elliða, hálf tommu túpu.

Eftir nokkur köst tók fiskur og Boggi Tona vissi strax að þetta var stórlax. Eftir mikið reiptog og hörku viðureign landað hann hrygnu sem mældist 100,5 sentímetrar. Boggi tók fast á henni og honum telst til að viðureignin hafi ekki verið meira en sex til sjö mínútur. Hrygnunni var sleppt.

Veiðin í Jöklu í sumar hefur verið með ágætum og síðasta vika skilaði hundrað löxum. Allt útlit er fyrir að Jökla slái met þetta sumarið. Hún er þegar komin í 559 laxa og mestur afli sem hefur verið skráður á einu sumri er 815 laxar árið 2015.

Súddi með 97 sentímetra hæng úr Hólaflúð í Jöklu.
Súddi með 97 sentímetra hæng úr Hólaflúð í Jöklu. Ljósmynd/Aðsend

Með Bogga Tona í hollinu þegar hann landaði hrygnunni var foringinn Sigurður Staples, eða Súddi. Hann setti í og landaði glæsilegum hæng sem mældist 97 sentímetrar. Veiðistaðurinn var Hólaflúð sem er einn gjöfulasti staðurinn í Jöklu.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Víðidalsá Stefán Elí Stefánsson 4. september 4.9.
101 cm Laxá í Dölum Hafþór Jónsson 27. ágúst 27.8.
102 cm Haukadalsá Ármann Andri Einarsson 23. ágúst 23.8.
103 cm Laxá í Aðaldal Birgir Ellert Birgisson 12. ágúst 12.8.
103 cm Miðsvæði Laxá í Aðaldal Máni Freyr Helgason 11. ágúst 11.8.
101 cm Laxá í Aðaldal Agnar Jón Ágústsson 10. ágúst 10.8.
101 cm Laxá í Aðaldal Richard Jewell 9. ágúst 9.8.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert